8-liða úrslit
Föstudagur, 12. Febrúar 2010 15:24

Nú er keppnisgluggi 8-liða úrslita kominn vel á veg og því upplagt að fara yfir stöðu mála.

Nú þegar hefur ein keppni farið fram en þar tókust við MS og MÍ um umræðuefnið Meðalmennska. MS sigraði keppnina og er þar með fyrstur skóla til að komast í undanúrslit. Tvær keppnir hafa hlotið frest vegna óviðráðanlegra aðstæðna, en MH tekur á móti FG þann 24. febrúar og Verzló mætir MR í Bláa sal daginn eftir, þann 25. Enn hefur ekekrt heyrst frá aðstandendum FB og Kvennó, en þeir eru kvattir til að gera það sem fyrst.

Örlitlar breytingar hafa verið gerðar á síðunni t.d. myndir af stjórn settar inn og fleira. Stærsta breytingin er fólgin í að dómaralista hefur nú verið kippt út af síðunni tímabundið en þess í stað settur nýr, uppfærður listi í skjalabúnkann. Eflaust kemur þetta sér illa fyrir suma, en þetta er gert vegna tæknilegra örðugleika við að uppfæra eldri listann. Innan skamms ættu dómblöð að koma inn á síðuna, og við biðjumt velvirðingar á þeim töfum sem þar hafa orðið á.

Að vanda óska ég öllum velfarnaðar, innan pontu og utan.

Arnþór Axelsson
Formaður MORFÍs
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. - 8644992