Tenglar
Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Fjölbrautaskóli Vesturlands
Fjölbrautaskólinn í Ármúla
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
Kvennaskólinn í Reykjavík
Menntaskólinn á Akureyri
Menntaskólinn á Egilsstöðum
Menntaskólinn á Ísafirði
Menntaskólinn Hraðbraut
Menntaskólinn í Kópavogi
Menntaskólinn í Reykjavík
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Menntaskólinn við Sund
Verzlunarskóli Íslands
| Saga MORFÍs |
| Sunnudagur, 13. Desember 2009 12:28 |
|
Saga MORFÍS Það var á því herrans ári 1983 að forkólfar málfundafélaga framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu komu saman til þess að leggja á ráðin um stofnsetningu keppni þeirrar sem í dag gengur undir nafninu MORFÍS. Upphaflega var framkvæmd keppninnar í höndum einstaklinga úr J.C. (Junior Chambers) en fljótlega kom upp ágreiningur milli J.C. og framhaldsskólanema sem endaði með því að árið 1985 var í fyrsta skipti kjörin stjórn MORFÍS skipuð framhaldsskólanemum sem hefur séð um framkvæmdina æ síðan.
Fyrstu ár keppninnar einkenndust af harðvítugum deilum milli þátttökuskólanna sem bárust iðulega á öldur ljósvakans og er skemmst að minnast einna frægasta deilumálsins sem upp kom árið 1985 þegar FVA tapaði fyrir FB og mátti í næsta tölublaði Skagablaðsins lesa forsíðufréttina? Stöðugur fúkyrðaflaumur og Akranes sagt Sódóma Íslands." Skagamenn sögðu sig úr keppninni og sendu framkvæmdastjórninni kaldar kveðjur vélritaðar á klósettpappír tveimur árum síðar þegar þeim var send sáttabón.
Á þessum tíma var dómblaðið allt öðruvísi en það er í dag og risu oft háværar deilur um meinta dómaraskandala og heimsku dómblaðsins eftir keppni. Sérstök dómblaðanefnd var því skipuð og kom hún fram með núverandi dómblað sem nokkuð almenn sátt virðist ríkja með, enda róuðust deilurnar heldur í kjölfar komu þess. Haustið 1988 var gerð tilraun með fjögurra klukkustunda undirbúningstíma fyrir lið og tvær prufukeppnir fóru fram og var ákveðið að þeim loknum að halda fyrirkomulaginu óbreyttu, þ.e. sjö daga undirbúningstíminn skyldi áfram við lýði.
Upphaf tíunda áratugarins hafa jafnan verið nefnd gullaldarár MORFÍS en þá naut keppnin gífurlegrar athygli almennings og má sem dæmi nefna að þegar keppt var til úrslita í MORFÍS var reglulega skipt þangað úr ástsælasta sjónvarpsþætti landans til langs tíma? Á tali hjá Hemma Gunn". Liðsmenn þeirra liða sem langt náðu í keppninni voru landsfrægir og birtust m.a. í auglýsingum og sjónvarpsviðtölum.
Undanfarin ár hefur keppnin verið með rólegra móti. Fá alvarleg deilumál auk nokkuð fastmótaðs fyrirkomulags hefur skapað keppninni sess sem fastur liður í félagslífi framhaldsskóla á Íslandi og er vonandi að það haldi áfram sem lengst. Í ár er unnið hörðum höndum að markaðssetningu keppninnar, t.d. með sýningum í sjónvarpi til að koma henni á ný á borð landsmanna allra, enda er keppnin hin besta skemmtun og óskandi að sem flestir fái notið hennar um ókomna tíð.
1985 - Menntaskólinn í Reykjavík 1986 - Menntaskólinn í Reykjavík 1987 - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ 1988 - Menntaskólinn í Reykjavík 1989 - Menntaskólinn við Sund 1990 - Fjölbrautaskólinn í Garðabæ 1991 - Verzlunarskóli Íslands 1992 - Verzlunarskóli Íslands 1993 - Verzlunarskóli Íslands 1994 - Menntaskólinn við Hamrahlíð 1995 - Menntaskólinn við Hamrahlíð 1996 - Fjölbrautaskólinn í Breiðholti 1997 - Verzlunarskóli Íslands 1998 - Verzlunarskóli Íslands 1999 - Menntaskólinn á Akureyri 2000 - Verzlunarskóli Íslands 2001 - Menntaskólinn á Akureyri 2002 - Menntaskólinn við Hamrahlíð 2003 - Verzlunarskóli Íslands 2004 - Verzlunarskóli Íslands 2005 - Verzlunarskóli Íslands 2006 - Menntaskólinn í Reykjavík 2007 - Menntaskólinn við Hamrahlíð 2008 - Menntaskólinn í Reykjavík 2009 - Verzlunarskóli Íslands |