Leiðbeiningar


1. hluti: Um ræðulið og einstaka ræðumenn:

Ræðulið er skipað fjórum einstaklingum, liðsstjóra og þremur ræðumönnum: frummælanda, meðmælanda og stuðningsmanni.

1.1 Liðsstjóri:
Liðsstjóri kynnir lið sitt í upphafi keppni og nær upp stemningu meðal áhorfenda. Ræða liðsstjóra hefur engin tímamörk enda eru ekki gefin stig fyrir hana. Liðsstjórinn er þó hvergi nær óþarfur því hann ber ábyrgð á svörum liðsins. Hann heldur utan um málflutning andstæðinganna í keppni og skipar svörum niður á ræðumenn. Ef liðið hefur samið undirbúin svör fyrir keppnina heldur liðsstjórinn utan um þau . Nauðsynlegt er að liðsstjóri geti skrifað bæði hratt og greinilega og sé vel skipulagður ef liðið mætir til leiks með undirbúin svör.

1.2 Frummælandi:
Frummælandi talar fyrstur ræðumanna, í MORFÍS á fyrri ræða ræða frummælanda að vera 4-5 mínútur en sú seinni 3-4 mínútur eins og allar aðrar ræður keppninnar. Fyrri ræða frummælenda á að vera allýtarleg og málefnaleg og í henni eiga að koma fram flestar þær meginröksemdir sem liðið mun nota í keppninni. Þar sem frummælendi talar fyrstur allra getur hann ekkert svarað í fyrri ræðu sinni en ætlast er til þess að hann svari í seinni ræðu sinni. Ef frummælandi treystir sér til, getur reynst vel að hafa undirbúna hluta seinni ræðunnar í styttra lagi þar sem mikill tími gefst til að undirbúa svör, æfa þau og tímamæla.

1.3 Meðmælandi:
Meðmælandi talar annar ræðumanna. Báðar ræður hans eru 3-4 mínútur. Hlutverk meðmælanda er að skýra frekar og leggja út frá þeim rökum sem frummælandi hefur áður kynnt til sögunnar. Meðmælandinn er að því leiti ekki öfundsverður að hann þarf að svara fullyrðingum sem fram koma í ræðum frummælanda hins liðsins aðeins örskömmu áður en hann stígur sjálfur í pontu. Því er ekki ráðlagt fyrir nýliða að ætla sér um of í svörum.

1.4 Stuðningsmaður:
Stuðningsmaður talar síðastur ræðumanna. Báðar ræður hans eru 3-4 mínútur. Líkt og hjá meðmælanda er hlutverk stuðningsmanns að hnykkja á og skýra betur þau rök sem frummælandi hefur tiltekið. Ekki þykir þó fara vel á því að veigamiklir rökpunktar séu fyrst kynntir til sögunnar í ræðum stuðningsmanns. Því er ábyrgð stuðningsmanns mikil þegar kemur að svörum.



2. kafli: Um ræðusamningu:

 

Í upphafi fyrri ræðu á að ávarpa fundarstjóra, dómara, andmælendur og fundarmenn en í seinni umferð er nóg að ávarpa fundarstjóra.

2.1 Svör:
Megináhersla skal lögð á að svara meginrökum andstæðinganna. Ef lið ætla sér stóra hluti þá ættu þau að eyða góðum tíma í að reyna að sjá fyrir rök andstæðinganna og búa til svör við þeim fyrir keppnina.Mest er þó gefið fyrir svör sem greinilegt er að samin eru á staðnum upp úr ræðum andstæðinganna t.d með því að grípa dæmi eða sögur úr ræðum þeirra og svara með tilvísunum í dæmið eða söguna.Hættulegt er að ætla sér um of í óundirbúnum svörum og sérstaklega eru byrjendur varaðir við að treysta of mikið á þau.

2.2 Annað:
Ræðumenn skulu forðast ljótan munnsöfnuð og erlendar slettur. Einnig fer síendurtekinn og grófur munnsöfnuður í garð andstæðinganna ekki vel í dómara. Mikilvægt er að halda sig innan efri og neðri tímamarka því gefið er eitt refsistig fyrir hverja sekúndu sem talað er umfram þau. Menn þurfa þó ekki að einblína á skeiðklukkuna alla ræðuna því viðvörun er gefin þegar 30 sek. eru eftir af ræðunni. Til að nýta þetta sem best er hentugt að hafa 20-25 sek. langan lokakafla sem menn geta komið sér inn í þegar þeir fá 30 sek. spjaldið.

2.3 Æskileg uppbygging á ræðu:
Til eru þó nokkur ræðuform en hentugast er að byggja ræðuna upp svona:
1. Fyrri hluti ræðu
2. Svör
3. Seinni hluti ræðu

Fyrri ræðu frummælanda er, eins og áður hefur komið fram, ekki brotin upp með svarakafla. Annars gildir þetta form fyrir allar aðrar ræður keppninnar.
1.Fyrri hluti ræðu: Þetta er lengsti hluti ræðunnar og er hann notaður til þess að koma að öllum helstu rökum og sjónarmiðum hennar.
2. Svör: Hér er eins og gefur að skilja svarað helstu rökum andstæðinga. Misjafnt er hversu langan menn treysta sér til að hafa þennan kafla ræðunnar, enda er hann búinn til/ settur saman á staðnum.Lengdin á svarkafla fer eftir undirbúningi liðs og dugnaði liðsstjóra en á þó helst ekki að fara undir 30 sek. ef vel á að vera.
3.Seinni hluti ræðu: Þessi hluti á, eins og áður hefur komið fram, helst að vera u.þ.b 20- 25 sek. svo ræðumenn geti hætt að svara þegar þeir fá 30 sek. spjaldið og komið sér inn í lokakaflann. Oft fer vel á því að enda ræðuna með vísun í fyrri hluta t.d að klára sögu sem byrjað var á í fyrri hlutanum eða botna vísu sem kastað var fram. Einnig er gott að hafa allra síðustu orðin dramatísk og eftirminnileg.


3. kafli: Dæmi um ræðu byggða upp eftir þessu formi:

( ATH. Ræðuna skal aðeins taka alvarlega hvað form varðar en ekki hvað varðar rök og annað). Einnig skal nefnt að ræðan er gerð fyrir ræðukeppni þar sem ræðutími er einungis 1-2 mín en ekki 3-4 mín eins og í MORFÍS.
Fundarstjóri, dómarar, andmælendur, góðir fundarmenn
Ég fór í sund um daginn. Það eitt og sér er að sjálfsögðu ekki í frásögur færandi. Enda gerðist ekkert merkilegt í lauginni. En eftir að ég var búinn að synda 4 km baksund í kafi ætlaði ég að fá mér eina sígarettu.
Ég var ekki fyrr búin að tendra í blysinu en einhver ógeðsleg gömul kelling vindur sér upp að mér og hreytir út úr sér:
,, Heyrðu, skinnið mitt ertu nú alveg viss um að þú sért nú nógu gamall til að reykja, viltu ekki bara hætta þessu, þetta er svo óhollt. "
Ég varð svo reiður að ég var næstum því búinn að berja kellinguna. En ég lét mér nægja að segja henni að steinhalda kjafti og fokka sér í burtu.
Ég meina, þvílíkur dónaskapur í einum . Þótt ég sé kannski ekki gráhærður, með gigt og krumpað andlit þá er ég sko löngu orðinn 16 og meira að segja byrjaður að raka mig.
Dónaskapur er gjörsamlega óþolandi, við þekkjum öll dæmi eins og ég lýsti áðan en dónaskapurinn á sér fleiri og skuggalegri hliðar:
Dónaskapur er samnefnari fyrir allt það sem er vont, ljótt, ógeðslegt og leiðinlegt.
Allir eru sammála um það að að þeir sem eru dónalegir eru vondir. Ljótt og ógeðslegt fólk sem lítur út eins og straujárn er dónalegt gagnvart þeim sem eru fallegir. Og dónalegt fólk er upp til hópa leiðinlegt og bara almennt til ama.
Eina vonin fyrir þessa dóna er að heilbrigt fólk, fólk eins og við MR-ingar ölum þá upp með öllum tiltækum ráðum

-Svör-
Góðir fundarmenn
Ég hef ekkert á móti gömlu fólki, slövum, kvenmönnum eða öðrum minnihlutahópum.
Ég skipti fólki í tvo hópa. Dóna og ekki dóna.
Ef andstæðingar mínir ætla að halda áfram að vera dónalegir eru þeir allt í senn vondir, ljótir og leiðinlegir.
Ég og félagar mínir verðum því að ala þá upp.



4. kafli: Dómar:

 

Dómarar gefa fyrir eftirtalin atriði (skýringar eru þær sem standa aftan á dómblöðum og dómarar hafa til hliðsjónar)
Gefin er einkunn í heilum tölum á skalanum 1-10. Margföldunarstuðull stendur fyrir aftan heiti hvers þáttar
Ræða x4
Ræðumaður sé málefnalegur, vel kunnugur efninu og haldi sig við það. Hann styðji mál sitt með haldgóðum rökum en noti tölur í hófi. Heimilt er að nota hefðbundin hjálpargögn svo sem myndvarpa, myndir, skýrslur o.þ.h.
Byrjun tengist því efni sem á eftir fer.
Ræðumaður nái strax athygli áheyrenda. Góður hrynjandi sé í ræðunni og efnið skipulega sett fram.
Svör komið eðlilega inn í ræðu. Í keppni skal láta liðstjóra það eftir að þakka embættismönnum fundarins.
Endir ræðu sé í beinu samhengi við málefnið og sé áheyrendum eftirminnilegur
Talað sé gott íslenskt mál og erlendar slettur notaðar í miklu hófi telji ræðumaður þær á annað borð nauðsynlegar.
Ekki sé talað svo flókið má að ræðumaður skiljist ekki
Svör x4
Hnitmiðuð mótrök, er hnekkja á málflutningi mótherja í heild, teljast til svara við rökum. Einnig skal meta bein svör við spurningum sem eru málefnaleg -ekki útúrsnúningur. Sé spurningu beint til ræðumanns er vænst svars (nema spurningin sé rökleysa).
Málflutningur
Raddbeiting: Ræðumaður tali skýrt og greinilega svo vel heyrist í honum. Röddin sé blæbrigðarík en ekki óeðlileg.
Augnaráð: Ræðumaður sé ekki bundinn blaði um of, né einhverjum einum stað í salnum, heldur horfi eðlilega um fundarsal.
Framkoma: Ætlast er til að ræðumaður sé snyrtilega klæddur. Hann skal ekki vera óprúður, hvorki gagnvart mótherjum né öðrum.
Ávarp: Ávarpa skal fundarstjóra, mótherja, dómara og gesti í upphafi fyrri ræðu en aðeins fundarstjóra í þeirri seinni.
Tilvitnanir: Tilgreina skal til hvers er vitnað. Fulljóst skal vera hvenær tilvitnun hefst og hvenær henni lýkur. Óþarft er að biðja um leyfi fundarstjóra til tilvitnunar, þótt það sé heimilt.
Spurningar: Ræðumaður beini aldrei spurninu til ræðumanns sem lokið hefur sinni seinni ræðu og getur því ekki svarað.
Handahreyfingar: Ræðumaður má nota handahreyfingar ef hann vill leggja áherslu á málið en varast óeðlilegt handapat.
Áheyrendur skynji að ræðumaður meini það sem hann segir. Ræðumaður haldi athygli áheyrenda. Takmark ræðumannsins er að fá áheyrendur á sitt band og gera þá sammála sér.
Geðþóttastuðull x1
Ef dómara finnst ræðumaður koma með áberandi góða punkta, athugasemdir eða annað sem dómara líkar vel má dómari gefa stig á bilinu 1-10

Tími
Fyrsta frummælendaræða hvors liðs er 4-5 mínútur. Allar aðrar ræður eru 3-4 mínútur
Refsistig
Oddadómari gefi 1 refsistig fyrir hverja sekúndu yfir eða undir tímamörkum. Meðdómendur gefi ekki refsistig.
Meðalstig framsöguræðu
Notað til að jafna möguleika frummælenda í útreikningi á besta ræðumanninum. Meðalstig framsöguræðu er = stig framsöguræðu deilt með 2. Eftir deilingu skal útkoman jöfnuð í heila tölu.



Gátlisti fyrir keppni

 

7 dögum fyrir keppni skulu liðin hefja samninga um umræðuefni og dómara. Þegar það er komið á hreint skal láta Framkvæmdastjórn MORFÍS vita um efnið og dómarana og vera viss um að þeir viti hvar og hvenær þeir eiga að mæta. Ath. að dómarar eru ábyrgðarefni keppnisliða. Verði einhver vandræði með val á efni eða dómurum skal Framkvæmdastjórnin látin vita og mun hún úthluta efni og dómurum takist samningar ekki.

Bæði lið skulu leggja til tímavörð vopnaðan skeiðklukku sem getur mælt tímann í sekúndum og einn gæslumann.

Hlutverk tímavarðar er að tímamæla ræðurnar og setja svokallaðan 30 sek miða á áberandi stað á púltinu þegar 30 sek eru til loka hámarkstíma sem ræðumaður hefur, 5 mín á fyrri frummælendaræðu en 4 mín á öllum öðrum ræðum. Hvíta miðann skal því leggja á púltið á eftirfarandi stundum

Fyrri umferð
Þegar frummælandi meðmælenda hefur talað í 4:30 mín
Þegar frummælandi andmælenda hefur talað í 4:30 mín
Þegar meðmælandi meðmælenda hefur talað í 3:30 mín
Þegar meðmælandi andmælenda hefur talað í 3:30 mín
Þegar stuðningsmaður meðmælenda hefur talað í 3:30 mín
Þegar stuðningsmaður andmælenda hefur talað í 3:30 mín

Seinni umferð
Þegar frummælandi meðmælenda hefur talað í 3:30 mín
Þegar frummælandi andmælenda hefur talað í 3:30 mín
Þegar meðmælandi meðmælenda hefur talað í 3:30 mín
Þegar meðmælandi andmælenda hefur talað í 3:30 mín
Þegar stuðningsmaður meðmælenda hefur talað í 3:30 mín
Þegar stuðningsmaður andmælenda hefur talað í 3:30 mín

Ræða hefst þegar ræðumaður ávarpar fundarmenn, en allar ræður hefjast á orðinu: FUNDARSTJÓRI og skulu tímaverðir gangsetja klukkur sínar þegar ræðumaður segir FUNDARSTJÓRI og hætta þegar hann hefur augljóslega lokið máli sínu. Að lokinni ræðu skulu tímaverðir bera saman klukkur sínar og skrifa svo tíma ræðunnar á miða sem afhentur er fundarstjóra. Einnig skulu þeir taka 30 sek miðann niður. Tímaverðir skipta um sæti í hléi, svo sá sem situr upp við púltið fyrir hlé situr fjær því eftir hlé.

Ef þetta er ekki á hreinu eða tímavörður vill fá nánari upplýsingar um starf sitt skal hann ráðfæra sig við dómara.
Hlutverk gæslusmanns er að gæta þess að enginn nema kappliðin, þ.e. enginn nema liðstjóri, frummælandi, meðmælandi og stuðningsmaður fari inn með kappliðinu í hléinu milli umferða. ÞJÁLFURUM ER ÓHEIMILT AÐ FARA INN MEÐ LIÐUNUM Í HLÉI. Gæslumenn skulu gæta liða andstæðinganna.

Það lið sem á heimaleik skal auk þess sjá fyrir:
Keppnin skal fara fram í hæfilega stórum sal, sem rúmað getur stuðningslið beggja skóla. Stuðningslið þess skóla sem á ekki heimaleik á rétt á a.m.k 50% rýmisins. Hljóðnemi í pontu tengdur hljóðkerfi sem magnar rödd mælenda nægilega upp að mati dómara skal vera til staðar. Einnig þau hjálpargögn sem lið biðja um og geta talist við hæfi s.s. myndvarpar.

Í miðjum salnum, svo að vel sést á sviðið, skal koma fyrir þremur borðum og þremur stólum fyrir dómarana. Nægileg lýsing skal vera svo unnt sé að lesa og skrifa við borðin. Einnig skal koma þar fyrir þremur glösum og vatnskönnu. Gæta skal að því að stólum sé ekki raðað svo þétt að þeir sem sitji nálægt borðunum geti séð á dómblöðin og hafa dómarar rétt á að láta rýma sæti nálægt þeim telji þeir hættu á slíku. Á borðunum skal koma fyrir þremur dómblöðum, þremur pennum og einu A4 umslagi. Dómblöð má nálgast hjá framkvæmdastjórn MorfÍs ef þau eru ekki fyrir hendi.

Á sviði skal koma fyrir púlti og nægileg lýsing skal vera við pontuna svo unnt sé að lesa af blaði úr henni. Hægra megin við púltið(séð frá þeim sem stendur í því) skal koma fyrir einum stól og einu borði með vatnsglasi og könnu fyrir fundarstjóra. Vinstra megin við púltið skal koma fyrir tveimur borðum og stólum auk glasa og vatnskönnu fyrir tvo tímaverði. Á sviðinu skulu einnig vera borð og stólar fyrir fjóra sitthvorumegin við púltið. Skulu stuðningsmenn tillögu sitja fundastjóramegin en andmælendur tímavarðamegin. Skal nægileg birta vera við öll borðin.

Það lið sem á heimaleik velur fundarstjóra og skal hann vera hlutlaus í máli sínu. Hlutverk hans er að kynna ræðumenn og starfsmenn og lesa tíma þeirra fyrir dómara að lokinni ræðu. Hann getur ekki slitið keppni, það getur aðeins oddadómari. Fundastjóri getur lesið meira um starf sitt í lögum MorfÍs eða rætt við dómara fyrir keppni.

Það lið sem á heimaleik skal auk þess sjá fyrir dyravörðum sem gæta að því að umgangur sé enginn og inngangur í salinn lokaður meðan ræðurnar eru fluttar. Einnig skulu þeir gæta þess að enginn fari upp á sviðið meðan á keppni stendur og þar sé enginn nema kappliðin, tímaverðir og fundarstjóri. Dyravörðum er heimilt að vísa áberandi drukknum einstaklingum út úr húsi.

Til reiðu skulu vera þrjú lokuð herbergi, eitt fyrir hvort kapplið og eitt fyrir dómara til notkunar í hléi. Gæta skal þess að sæmilegt næði sé við herbergin. Fyrrgreindir gæslumenn skulu gæta herbergjanna í hléi.

Það lið sem á heimaleik skal reyna að taka keppnina upp á myndband til varðveislu.

Það lið sem á heimaleik skal eftir keppni safna saman dómblöðum og koma til framkvæmdastjórnar MorfÍs.

Gangi ykkur vel. Ef einhverjar spurningar vakna hafið þá endilega samband við okkur.


Stjórn MorfÍs 2005-2006