|
1. Lög um félagið
1.1 Félagið heitir „Mælsku og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi“ , skammstafað MORFÍS. 1.2 Aðilar að MORFÍS geta orðið allir þeir skólar er menntamálaráðuneytið skilgreinir sem framhaldsskóla á Íslandi. 1.2.b Aðilar að MORFÍS eru allir þeir skólar sem tóku þátt árið áður. 1.3 Hlutverk MORFÍS er að halda árlega mælsku- og rökræðukeppni með útsláttarfyrirkomulagi til að skera úr um hver aðildarskóla eigi hæfustu ræðumennina. 1.4 Hver skóli má aðeins senda eitt lið. 1.5 Framkvæmdastjórn MORFÍS skal skipuð fimm einstaklingum sem kosnir eru á aðalfundi. Á fyrsta fundi skulu þeir skipa formann, framkvæmdastjóra og ritara. 1.6.a Samningaviðræður keppnisliða um umræðuefni skulu hefjast þegar vika er í keppni. Ef samningar takast ekki innan 12 klukkustunda frá upphafi samningaviðræðna skal framkvæmdastjórn ákveða umræðuefni í samráði við keppnislið. Ef það tekst ekki hefur framkvæmdastjórn úrslitavald um umræðuefni. 1.6.b Aðildarskólar skulu senda framkvæmdastjórn MORFÍS skriflega staðfestingu á þátttöku ásamt þátttökugjaldi eigi síðar en 3 vikum áður en fyrsta umferð á að fara fram.
1.6.c Hafi skóli skráð sig til þátttöku en dragi sig svo úr keppni skal hann greiða helming þátttökugjalds, enda getur skráning sem síðar er dregin til baka valdið aukaútgjöldum fyrir MORFÍS.
1.7 Stjórn Morfís skal halda utan um allt bókhald Morfís; Lög Morfís, fundargerðir og lagabreytingar af aðalfundum, ársskýrslur og reikninga stjórnar Morfís, dómblöð og upptökur af öllum keppnum. Bókhald þetta er á ábyrgð ritara framkvæmdastjórnar, hefur lagalegt gildi og skal vera öllum aðildarskólum aðgengilegt.
Efst
2. Lög um aðalfund
2.1.a Þegar boðað er til aðalfundar skulu lög Morfís, lagabreytingatillögur fráfarandi stjórnar Morfís og ársskýrsla hennar fylgja með. Aðildarskólar skulu leitast við að senda lagabreytingar sínar rafrænt til stjórnar Morfís fyrir aðalfund sem stjórn Morfís sendir aðildarskólum til kynningar.
2.1.b Aðalfund MORFÍS skal halda við upphaf haustannar ár hvert og skal boða til hans bréflega og/eða með tölvupósti með minnst tíu daga fyrirvara. 2.2 Aðalfundur telst ekki löglegur nema til hans sé löglega boðað. 2.3 Dagskrá aðalfundar er sem hér segir: a) Skýrsla fulltrúa fráfarandi Framkvæmdastjórnar. b) Reikningar félagsins. c) Önnur mál. d) Lagabreytingar. e) Framboðsræður frambjóðenda í Framkvæmdastjórn MORFÍS. f) Kosningar í Framkvæmdastjórn MORFÍS. 2.4.a Aðalfundur er opinn allt að þremur fulltrúum frá hverjum framhaldsskóla sem fara sameiginlega með atkvæði skólans, oddadómurum og þeim áheyrnafulltrúum sem fundinum eru þóknanlegir. 2.4.b Allir aðalfundagestir hafa málfrelsi og tillögurétt. 2.4.c Kjörgengi í Framkvæmdastjórn MORFÍS eru allir nemendur framhaldsskóla sem ekki útskrifast um næstu jól. 2.4.d Ekki skal boða til aðalfundar fyrr en uppkast að uppgjöri liggur fyrir og skal ljósritum dreift til fundarmanna. 2.4.e Uppkast að reikningum skal borið undir samþykki fundarmanna. 2.4.f Afrit af endanlegu bókhaldi Framkvæmdastjórnar MORFÍS skal senda formönnum nemendafélaga og tenglum að hausti. 2.5 Kjör til framkvæmdastjórnar MORFÍS skal fara fram sem hér segir: a) Fráfarandi stjórn myndar kjörstjórn. b) Gefi einstaklingur kost á sér til endurkjörs víkur hann úr kjörstjórn. c) Kjörstjórn tekur við framboðum. d) Framboð skulu berast áður en umræðum um lagabreytingar lýkur, sbr. grein 2.3.d. e) Séu fimm einstaklingar í kjöri verður 1/3 fundarskóla á aðalfundi að samþykkja þá. f) Séu fleiri en fimm einstaklingar í kjöri ná þeir kosningu sem tilnefndir eru á flestum atkvæðaseðlum. g) Nú hljóta tveir eða fleiri einstaklingar atkvæði í neðsta sætið og skal þá kosið aftur á milli þeirra. h) Við kosningu þá er lýst er í g) lið skal aðeins tilnefna þann fjölda er vantar upp á að Framkvæmdastjórn verði fullskipuð. i)Sé ekki næg þátttaka í stjórn á aðalfundi má réttkjörin stjórn taka inn meðlimi þar til stjórn er fullskipuð. 2.6 Lagabreytingar þurfa 2/3 hluta greiddra atkvæða til að ná fram að ganga. 2.7.a Helmingur aðildarskóla MORFÍS getur farið fram á aukaaðalfund. 2.7.b Til aukaaðalfundar skal boðað með minnst 10 daga fyrirvara og kröfur aðildarskóla um tilhagan fundarins útskýrð í því boði. Auka-aðalfundur telst löglegur ef hann sitja fulltrúar frá 2/3 aðildarskóla Morfís.
Efst
3. Lög um mælsku- og rökræðukeppni
3.1 Keppnin er útsláttarkeppni. 3.2 Í fyrstu umferð skal sitja hjá sá fjöldi liða sem þarf til að í annarri umferð standi eftir fjöldi sem er veldi af tveimur (t.d. 8 eða 16). 3.3.a Dregið skal um hvaða keppnislið mætast og hver keppnisstaðurinn sé minnst 8 dögum fyrir keppni. 3.3.b Er tvö lið mætast skal það lið fá heimaleik er sjaldnar hefur átt heimaleik, nema sættir takist um annað. Hafi liðin keppt jafn oft heima skal það lið fá heimavöll er ekki hefur setið hjá. Geri þetta ekki út um það hvort liðið keppir heima skal um það dregið samkvæmt a.-lið. 3.3.c Heimaleikur telst vera á húsnæði sem markast af byggðarlagi viðkomandi skóla, nema sættir takist á um annað. 3.4. Heimalið skal útvega pontu sem fellur undir almenna staðla. 3.5. Úrslitakeppni skal fara fram á hlutlausum stað sem bæði kapplið samþykkja. 3.5 Hvort keppnislið um sig, sem keppir til úrslita á MORFÍS, á tilkall til helmings þeirra aðgöngumiða sem til sölu eru að úrslitakeppninni. Keppnislið skulu skila inn óseldum miðum til framkvæmdastjórnar minnst 5 tímum fyrir keppni. 3.6 Utan fundarstjóra og sérskipaðra gæslumanna má enginn hafa samskipti við kapplið á meðan á keppni stendur eða í hléi. 3.7 Enginn óviðkomandi má koma upp á svið meðan á keppni stendur. 3.8 Fundarstjóri skal vera nemandi í þeim skóla sem heimaleik á, nema samkomulag verði um annað. Hann skal gæta þess að vera óvilhallur í hvívetna, og hafa kynnt sér lög um fundarsköp. 3.9.a Sérskipaðir gæslumenn, sem minnst er á í grein 3.6 skulu vera tveir, einn úr hvorum skóla er keppir. Hver gæslumaður skal skipaður af eigin kappliði og skal hann gæta þess að enginn hafi samskipti við mótherjana í hléi. 3.9.b Sá skóli sem á heimaleik skal útvega dyraverði, auk sérstakra gæslumanna fyrir fundinn skv. Grein 7.13 á fundarstað. 3.10.a Valdi nemendur annars þess skóla sem keppir verulegt eignatjón á keppnisstað skal liði skólans vísað úr keppni. Bætur tjónsins eru samkvæmt íslenskum lögum. 3.10.b Ölvuðu fólki skal meinaður aðgangur að keppnisstað. 3.11.a Framkvæmdastjórn MORFÍS setur tímaramma fyrir keppnisdaga, með tilliti til annarprófa, og skal tilkynna þá á haustfundi. Keppnisdag skulu viðkomandi keppnisskólar ákveða innan þessa tímaramma og skal tilkynnt til Framkvæmdastjórnar um leið. Um breytingu á keppnisdegi skal tafarlaust tilkynna til Framkvæmdastjórnar. 3.11.b Ef lið koma sér ekki saman um dag skal Framkvæmdastjórn draga um dagsetningu. Ef annað lið getur ekki keppt þann dag telst keppnin gefin af hálfu þess skóla. 3.11.c Keppnisliðum, eða fulltrúum þeirra ber skylda til að koma upplýsingum fljótt og vel til framkvæmdastjórnar t.a.m. um keppnisdaga og umræðuefni. Telji framkvæmdastjórn þessu ábótavant má sekta keppnisliðið um allt að því sem nemur helmingi af þáttökugjaldi þess árs. 3.12 Verði lið jöfn að stigum sigrar það lið sem fleiri dómarar dæma sigur. Ef það sker ekki úr um úrslit dregur ræðumaður kvöldsins lið sitt til sigurs. Verði tveir ræðumenn jafnir að stigum dregur sá ræðumaður sem er stigahæstur hjá fleiri dómurum lið sitt til sigurs. 3.13 Ef dómarar eru ekki mættir þegar þrjátíu mínútur eru liðnar frá umsömdum keppnistíma er liðum heimilt að leita til framkvæmdastjórnar MORFÍS sem skal þá gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að útvega hlutlausa dómara í stað þeirra sem vantar. 3.14.a Fulltrúi framkvæmdastjórnar MORFÍS skal vera viðstaddur allar keppnir. 3.14.b Á þær keppnir sem fulltrúi MORFÍS stjórnar kemst ekki á skal oddadómari viðkomandi keppni vera fulltrúi MORFÍS á keppninni.
Efst
4. Lög um kapplið
4.1 Kapplið samanstendur af þremur ræðumönnum og einum liðstjóra. 4.2 Heimilt er að gera mannabreytingar milli viðureigna. 4.3 Rétt til þátttöku hafa þeir einstaklingar sem stunda nám í aðildarskólum meðan keppnistímabilið stendur yfir. Allir nemendur mega taka þátt ef þeir eru í fullu námi samkvæmt viðmiðum síns aðildarskóla. 4.4.a Nemendur sem eru fulltrúar í Framkvæmdastjórn MORFÍS mega ekki vera keppendur. 4.5. Nemendur í áfanga- og einingaskólum sem hefja keppni á haustönn en útskrifast um jól mega ekki halda áfram keppni út veturinn. 4.6.a Verði skóli uppvís að því að nota ólöglegan mann í keppni, skal dæma skóla tap í þeim keppnum sem háðar voru með ólöglegan einstakling innbyrðis. 4.6.b Frá þessu skal horfið sé uppi álitamál um hvort viðkomandi sé ólöglegur eða ekki, skal þá kalla saman Rétt MORFÍS. 4.7 Grein 4.6. verður ekki framfylgt nema kæra hafi borist innan fimm sólahringa frá keppni.
Efst
5. Lög um verðlaunagripi
5.1 Framkvæmdastjórn MORFÍS gefur eða fær einhvern til að gefa bikara: a) Tvo handa sigurliði MORFÍS, einn farandgrip og einn eignargrip. b) Tvo handa ræðumanni Íslands, einn farandgrip og einn eignargrip. c) Einn eignargrip handa hverjum ræðumanni kvöldsins. Allir bikarar skulu afhentir á því kvöldi sem úrslitakeppni fer fram. 5.2 Bikararnir skulu vera þannig lagaður að hægt sé að drekka úr þeim. 5.3 Vinni skóli titil þrjú ár í röð eða fimm sinnum alls vinnur hann farandbikarinn til eignar. 5.4 Árlega skal grafið á bikarana ártal og nafn þess skóla og/eða nafn ræðumanns er titilinn vann. Framkvæmdastjórn MORFÍS skal fylgja því eftir. 5.5 Hverjum keppenda sigurskólans skal eftir úrslitakeppnina veita gullpening og jafnvel önnur verðlaun en mótherja þeirra í úrslitum skal veita silfurpening og jafnvel önnur verðlaun.
Efst
6. Lög um dómgæslu
6.1.a Dómarar skulu vera þrír í hverri keppni, minnst einn oddadómari og aðrir frá öðrum aðildarskólum sem keppa hverju sinni, nema um annað semjist. 6.1.b Í úrslitakeppni Morfís skulu vera fimm dómarar. Þeir skulu allir vera oddadómarar nema keppnislið sættist á annað.
6.2 Keppnislið sjá um að finna dómara fyrir hverja keppni. Hafa bæði lið rétt á að hafna þeim dómurum er koma til umræðu en skal sú höfnun vera rökstudd með rökum er sanna hlutdrægni viðkomandi dómara í viðkomandi keppni. Hafi keppnislið ekki komið sér saman um dómara fjórum klukkustundum fyrir keppni skal tafarlaust leitað til framkvæmdastjórnar MORFÍS sem sér þá um að skipa hlutlausa dómara. 6.3.a Oddadómarar eru útskrifaðir framhaldsskólanemar með dómararéttindi frá MORFÍS. 6.3.b Til að öðlast dómararéttindi er nauðsyn að fara á dómaranámskeið MORFÍS, haldið að hausti ár hvert af framkvæmdastjórn MORFÍS. 6.3.c Meðdómarar mega ekki vera keppendur, nema sættir takist um annað. Þeir skulu í öllum tilfellum vera á dómaralista MORFÍS. 6.4 Dómarar skulu mæta tímanlega til keppni. Keppnislið skulu sjá til þess að boða dómara til keppni. 6.5 Dómara skulu víkja afsíðis í hléi og gæta þess að láta ekkert utanaðkomandi hafa áhrif á dómgreind sína, né skulu þeir hafa áhrif á meðdómendur sína. 6.6 Dómarar skulu gefa hverjum keppenda einkunn á bilinu einn til tíu fyrir hvern eftirtalinna liða í hverri ræðu og fylla út þar til gert dómblað samkvæmt leiðbeiningum á bakhlið þess. a) Ræða (fjórfalt vægi) b) Svör og mótrök (fjórfalt vægi) c) Málflutningur (þrefalt vægi) d) Geðþóttastuðull (einfalt vægi) Ekki skal gefa fyrir lið b) í framsöguræðum. Hver dómari deilir með tveimur í stigafjölda hverrar ræðu. 6.7 Það lið sigrar sem hlýtur fleiri stig að frádregnum refsistigum þegar stigamunur er minni en, eða jafn og, 50 stig. Ef munur á milli liða er meiri en 50 stig þá sigrar það lið sem fleiri dómarar dæma sigur.
6.8.a Dómarar eru bundnir af stigagjöf sinni og geta ekki breytt afstöðu sinni, hvort sem er í hléi milli umferða eða í dómhléi.
6.8.b Dómarar skulu slá stigagjöf sína inn í töflureiknisskjal (af vefsíðu Morfís) í dómarahléi sem reiknar úrslit keppninnar út. Heimaskóli ber ábyrgð á að dómarar hafi aðgang að þessu skjali í dómarahlé. 6.9 Framkvæmdastjórn MORFÍS heldur námskeið fyrir tilvonandi dómara á hausti hverju. 6.10 Verði svo mikil læti í áhorfendum að ræðumaður geti ekki flutt ræðu sína skal oddadómari stöðva keppnina, rýma salinn og skal keppninni haldið áfram fyrir luktum dyrum. Sjá einnig grein 7.9. 6.11.a Fundarstjóri á að safna saman og varðveita blöð dómara og koma þeim til framkvæmdastjórnar. Óski keppnislið eftir því á fundarstjóri að leyfa þeim að yfirfara dómblöð á fundarstað.
6.11.b Dómblöðum skal komið til framkvæmdastjórnar og þaðan á vefsíðu Morfís innan tveggja vikna frá keppnisdegi.
Efst
7. Lög um fundarsköp
7.1.a Fundarstjóri skal vera valinn af þeim skóla sem á heimaleik, nema sættir takist um annað. 7.1.b Í úrslitakeppni skipar Framkvæmdastjóri MORFÍS hlutlausan fundarstjóra. 7.2 Fundarstjóri skal gæta þess að vera hlutlaus og óvilhallur og hafa kynnt sér lög um fundarsköp 7.3.a Fundarstjóri setur fundinn og les upp það umræðuefni sem rætt verður um. Þá kynnir hann dómara og aðra starfsmenn fundarins. 7.3.b Hvor keppnisskóli skal tilnefna einn tímavörð til starfa á fundinum. Tímaverðir skulu tímamæla ræður keppenda og sjá til þess að keppendur fái augljósa aðvörun þegar 30 sekúndur eru eftir af ræðutíma, sbr. grein 7.6. Tímamæling tímavarða skal standa jafnvel þótt mistök þeirra afli keppendum refsistigum, enda séu tímaverðir frá báðum keppnisskólum að störfum. Um framkvæmd tímamælinga vísast að öðru leyti til gátlista sem framkvæmdastjórn gefur út keppnisskólum til leiðbeiningar. 7.4 Fyrstir taka til máls liðsstjórar og kynna lið sín, fyrst talar liðsstjóri meðmælenda. 7.5 Keppni telst standa yfir frá því að fundur er settur þar til stuðningsmaður andmælenda hefur lokið síðari ræðu sinni. Á meðan á keppni stendur má enginn hafa samskipti við kapplið nema fundarstjóri og gæslumenn. 7.6 Dagskrá hverrar keppni er sem hér segir: a) Fyrri umferð, frummælendur tala í 4-5 mínútur, aðrir í 3-4 mínútur b) Hlé í 20 mínútur c) Síðari umferð, allir ræðumenn tala í 3-4 mínútur 7.7 Eftir keppni skal mælendaskrá opnuð hverjum sem tala vill uns dómarar hafa talið sama stig sín nema um úrslitakeppni sé að ræða. 7.8 Áhorfendur mega hvetja sína menn áður en þeir hefja mál sitt og eftir að þeir hafa lokið ræðum sínum, en þögn skal vera í sal á meðan á ræðum stendur. 7.9.a Verði ræðumaður fyrir svo mikilli truflun vegna hávaða fundarmanna að hann sjái sér ekki fært að halda áfram ræðu sinni án vandræða getur hann gert hlé á máli sínu og með leyfi fundarstjóra beðið eftir þögn. Um leið og ræðumaður beinir máli sínu til fundarstjóra skulu tímaverðir stöðva klukkur sínar og ræsa þær aftur um leið og ræðumaður hefur mál sitt þar sem frá var horfið. Sjá einnig grein 6.10. 7.9.b Sá tími sem líður frá því að ræðumaður gerir hlé á máli sínu og þar til klukkur eru stöðvaðar verður ekki dreginn frá heildartíma hans. 7.10 Fundarstjóri getur ekki slitið fundi upp á sitt einsdæmi, það vald er alfarið í höndum oddadómara, og skal fundastjóri því láta oddadómara eftir fundarstjórn. 7.11 Hafi fundi ekki verið slitið stígur oddadómari í pontu er stigin hafa verið talin saman. Hann tilkynnir hvaða keppandi hafi verið stigahæstur, hver munurinn á liðunum hafi verið og hver hafi sigrað. Þá slítur hann fundinum. 7.12 Þegar keppni hefst skal sal lokað og umgangur ekki leyfður nema á milli þess sem ræðumenn tala. 7.13 Fundarstjóri ber ábyrgð á því að dyraverðir og eftirlitsmenn séu á fundinum sbr. grein 3.9.b. Skulu þeir sjá til þess að greinum 7.8. og 7.12 sé framfylgt og hafa vald til að vísa þeim fundarmönnum út sem ekki hlíta þessum reglum.
8. Lög um kærumál
8.1 Verði keppandi eða skóli uppvís að því að brjóta gegn lögum þessum, venju eða góðu siðferði í keppni eða á undirbúningstíma hennar, getur skóli sá sem á að etja kappi eða sem atti kappi við hinn brotlega kært brotið til Framkvæmdastjórnar MORFÍS. 8.2.a Kæru má leggja fram þegar kapplið hafa verið dregin saman og rennur kærufrestur út þegar 5 dagar eru liðnir frá keppni. 8.2.b Grein 8.2.a gildir þá og því aðeins að öll gögn varðandi keppnina hafi borist kappliðum. 8.3 Kæran skal vera skrifleg og taka það fram sem hér segir, svo glögglega sem verða má. a) Nafn eða heiti þess sem kærður er. b) Dómskröfur kæranda. c) Málsaðstæður og önnur atvik sem þörf er að greina frá samhengis vegna. d) Rökstuðningur við kæru, hvert meint afbrot er. 8.4 Dómsvald í kærumálum og öllum ágreiningi um lög MORFÍS, venjur eða önnur túlkunaratriði fer sérlegur dómstóll með og nefnist “Réttur MORFÍS². 8.5 Rétt MORFÍS skipa eftirtaldir: a) Tveir aðilar úr Framkvæmdastjórn MORFÍS sem stjórnin telur síst tengjast viðkomandi máli. b) Tveir oddadómarar sem eru ekki tengdir málsaðilum, og eru valdir af Framkvæmdastjórn. c) Utanaðkomandi aðili sem þekkir vel til laga og reglna MORFÍS og hefur starfað á þeim vettvangi. Sá skal skipaður af þeim fjórum sem þegar sitja í dómnum og skal hann vera oddamaður dómsins. 8.6 Málsmeðferð skal vera sem hér segir: a) Framkvæmdastjórn fær kæru í hendur og skal velja tvo úr sínum hópi í dóminn. Fulltrúar Framkvæmdastjórnar kalla til tvo oddadómara og þessir fjórir velja hinn fimmta fulltrúa. b) Réttur MORFÍS skal fjalla um kæruna á einum fundi og taka ákvörðun um hvort beri að vísa kærunni frá, ellegar hvort hún skuli dómtekin. c) Sé kæran dómtekin skal senda afrit af henni til ákærða, innan sólarhrings frá því að kæran hefur verið dómtekin. d) Réttur MORFÍS boðar báða málsaðila til fundar innan sólarhrings frá því að ákærða barst skjalið í hendur. e) Réttur MORFÍS skal kveða til þá aðila sem hann telur að varpað geti ljósi á kærumál og skal Réttur MORFÍS með spurningum reyna að komast að hinu rétta. Réttur MORFÍS getur beiðst hverra þeirra gagna sem hann telur nauðsynleg við rannsókn málsins. f) Einungis tveir fulltrúar frá hvorum málsaðila mega vera viðstaddir réttarhöldin. Þeir er Réttur MORFÍS kveður til sérstaklega, sbr. lið e), teljast ekki fulltrúar. g) Þeir sem taldir hafa verið upp hér að ofan mega einir vera viðstaddir réttarhöldin. Þeim ber að sýna stillingu og gefa gott hljóð nema þeir séu spurðir af dómendum. h) Er Réttur MORFÍS hefur lokið spurningum sínum og öðrum athugunum er hvorum málsaðila heimilt að flytja allt að fimm mínútna ræðu og reifa málið sem fyrir liggur. Fulltrúi kærenda talar fyrst en síðan fulltrúi ákærða. i) Að svo búnu dregur Réttur MORFÍS sig í hlé og fellir dóm. Dómur skal vera rökstuddur. Komist dómendur ekki að samkomulagi ræður afl atkvæða úrslitum. Eigi er meðlimum réttarins heimilt afstöðuleysi í málinu j) Undantekningu frá málsmeðferð þessari má gera, ef full samstaða er um það í Rétti MORFÍS. 8.8 Oddamaður kveður upp úrskurð Réttar MORFÍS og rökstuðning úrskurðar. Sá úrskurður er bindandi frá og með dómsuppsögn og verður eigi hnikað. 8.9 Málsmeðferð má aldrei taka lengri tíma en átta sólarhringa nema lið j) greinar 8.6. sé beitt. 8.10 Viðurlagaheimildir þær er Réttur MORFÍS beitir eru þrennar, eftir eðli brots: a) Ávítur. b) Keppnisbann eins eða fleiri keppenda. c) Brottvísun liðs frá keppni.
Efst
9. Lög um heimasíðu
9.1.a Framkvæmdarstjórn Morfís skal halda úti heimasíðu sem skal innihalda fréttir af starfinu þá er þurfa þykir, t.d. eftir að dregið hefur verið, keppt eða dregið til annarra tíðinda. 9.1.b Skylt er að skýra frá úrskurði Réttar Morfís á heimsíðunni við fyrsta hentugleika. Taka skal fram dóm, hvernig atkvæði falla í réttinum, og öll sérálit dómara. 9.2 Tilgangurinn með heimasíðunni er að allir aðildarskóla viti hvað er að gerast í félagi þeirra, hvort sem þeir eru fallnir úr keppni eður ei. 9.3 Í upphafi keppnisárs skal hver skóli senda tölvupóst til framkvæmdastjórnar MORFÍS þar sem gefið er upp netfang og símanúmer tengiliðar vegna upplýsingaöflunar fyrir vefsíðu. 9.4 Um leið og keppnislið hefur verið skipað skal senda upplýsingar um liðið og liðsmenn þess til framkvæmdastjórnar MORFÍS. Þetta skal gerast eigi síðar en sjö dögum fyrir fyrstu viðureign liðsins á keppnisárinu. Skili lið ekki inn upplýsingum er framkvæmdastjórn MORFÍS heimilt að sekta lið um sem nemur allt að helmingi þátttökugjalds.
Efst
10. Lög um fjármál
10.1.a Allir aðildarskólar sem taka þátt í mælsku-og rökræðukeppni MORFÍS skulu greiða þátttökugjald sem ákveðið er af Framkvæmdastjórn. 10.1.b Framkvæmdastjórn getur veitt fámennum skólum afslátt af þátttökugjaldi. 10.2 Framkvæmdastjóri MORFÍS fer með fjármálastjórn félagsins. 10.3. Þurfi liðið að ferðast oftar en einu sinni milli landshluta eiga þeir kost á að sækja um að sjóður MORFÍS greiði ferðakostnaðinn fyrir liðið. 10.4 Framkvæmdastjórn getur skyldað heimalið til að láta auglýsingaskilti vera á áberandi stað í fundarsalnum í auglýsingaskyni.
Efst
11. Lög um Framkvæmdastjórn
11.1.a Framkvæmdastjórn MORFÍS skipa í mesta lagi fimm nemendur úr jafnmörgum aðildarskólum sem kosnir eru á aðalfundi. 11.1.b Meðlimir Framkvæmdastjórnar eru ekki fulltrúar skólanna sem þeir stunda nám í heldur skulu þeir gæta hagsmuna MORFÍS í hvívetna. Meðlimur framkvæmdastjórnar skal víkja sæti í álitamálum er framkvæmdastjórn þarf að ákvarða um ef málið varðar þann skóla sem hann stundar nám í. 11.1.c Aðilar í Framkvæmdastjórn mega ekki vera keppendur. 11.1.d Þegar stjórnarmeðlimir þurfa að nota flugferðir til að komast á framkvæmdastjórnarfundi skal sjóður MORFÍS greiða allt að sex ferðir á starfsárinu. 11.2.a Formaður Framkvæmdastjórnar ber ábyrgð á félaginu, stýrir stjórnarfundum og er málsvari þess. 11.2.b Framkvæmdastjóri heldur utan um öll gögn félagsins í samráði við ritara og sér um fjármál, hefur yfirumsjón með öllum miðlum félagsins og markaðssetningu keppninnar. Hann skal á hverjum stjórnarfundi skila inn útprentun á öllum fjármálum og fjárhagsstöðu frá síðasta fundi til stjórnarmeðlima. 11.2.c Ritari skal halda fundargerð stjórnarfunda og senda til stjórnarmeðlima, einnig skal hann í samráði við framkvæmdastjóra halda utan um gögn félagsins. Fundargerð aðalfunda er einnig í hans umsjá. 11.2.d Tveir meðstjórnendur skulu sitja í stjórn. Meðstjórnendur skulu halda utan um dómblöð frá keppnum vetrarins og halda þeim til haga. Meðstjórnendur skulu einnig leitast við að safna heimildum um MORFÍS, s.s. í formi upptaka af keppnum. 11.3 Framkvæmdastjórn MORFÍS fer með framkvæmdarvald keppninnar samkvæmt lögum þessum og miðast ákvarðanir við vilja meirihluta stjórnar. 11.4.a Helmingur aðildarskóla MORFÍS getur borið vantrauststillögu á Framkvæmdastjórn MORFÍS í heild eða einstaka stjórnarmeðlimi. 11.4.b Skal þá boðað til aukaaðalfundar þar sem einfaldan meirihluta greiddra atkvæða þarf til að tillagan nái fram að ganga. 11.4.c Aukaaðalfundur er ekki löglegur nema 2/3 aðildarskóla sitji fundinn.
Efst Samþykkt á aðalfundi MORFÍs, 29. september 2009.
|